Tölvutek hefur notað Tímon í um 4 ár. Við hittum fjármálastjórann Sigríði Höllu Olavsdóttur og spurðum hana um kerfið og reynslu Tölvuteks af Tímon.
Hver var mesta breytingin fyrir þig við að færa tímaskráningar úr Excel yfir í Tímon?
„Þetta var mikil breyting. Við erum búin prófa eitt og annað, til dæmis að nota Excel og einnig önnur tímaskráningarkerfi sem unnu ekki almennilega eftir t.d. reglum VR. Þetta var mjög mikil handavinna. Við tókum upp Tímon fyrir nokkrum árum og virkjuðum tenginguna við launakerfið sem við notum. Þetta er allt annað, mjög mikill tímasparnaður.“
Hvað hefur breyst eftir að þið tókuð Tímon í notkun?

Hvað er mikilvægast fyrir þig?
„Að allt stemmi, að ég geti treyst því að kerfið virki og það er nákvæmlega það sem það gerir.“
Er Tímon kerfi fyrir þitt fyrirtæki? „Við sáum fram á að geta sparað mikla vinnu“, smelltu hér til að sjá hvað Daníel rekstrarstjóri Tölvuteks hafði að segja um kerfið.
Getum við aðstoðað? Heyrðu í okkur, í síma 5100 600 eða sendu okkur fyrirspurn.

