Tímon og Floti verða á Verk og vit sýningunni sem fer fram í Laugardalshöll dagana 19.–22. mars. Á sýningunni kynnum við fjölbreytt úrval lausna og þjónustu fyrir fagfólk, með áherslu á nýjungar sem styðja við skilvirkni, öryggi og betri yfirsýn í daglegum rekstri.
Gestir fá tækifæri til fá ráðgjöf frá sérfræðingum og kynnast því hvernig lausnir Tímon og Flota geta einfaldað reksturinn og bætt verkferla. Hvort sem um er að ræða núverandi viðskiptavini eða nýja áhugasama aðila, er markmiðið að veita innsýn, svara spurningum og finna lausnir sem henta hverjum og einum.
Í ár fögnum við jafnframt 30 ára afmæli Trackwell hf. Af því tilefni verður sérstaklega gaman að taka á móti gestum, líta yfir farinn veg og ræða framtíðina, bæði með þeim sem hafa fylgt okkur í gegnum tíðina og þeim sem vilja kynnast starfseminni betur.
Við hlökkum til að sjá ykkur á svæði F21.
